Hreppsnefnd Skorradalshrepps
76
Mánudaginn 13. október 2014 kl. 20:45, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Árni Hjörleifsson, Sigrún Guttormsdóttir Þormar og Guðrún J. Guðmundsdóttir kom sem varamaður fyrir Fjólu Benediktsdóttur.
Fundarritari var Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.
Þetta gerðist:
| 
 Almenn mál 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Húsnæðismál sveitarfélagsins.     –     Mál nr. 1407006 
 | |
| 
 Lögð fram drög að samingi við Borgarland ehf. 
 | ||
| 
 Samþykkt, oddvita heimilað að skrifa undir nýjan leigusamning. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 2   
 | 
 Starfsmannamál     –     Mál nr. 1409003 
 | |
| 
 Lögð fram drög af auglýsingu fyrir skrifstofustarf. 
 | ||
| 
 Oddvita falið að birta auglýsingu. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 3   
 | 
 Samstarf um íþrótta- og æskulýðsmál.     –     Mál nr. 1409012 
 | |
| 
 Erindi frá UMSB 
 | ||
| 
 PD og JEE falið að ræða við UMSB. Málinu frestað. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 4   
 | 
 Deiliskipulag svæða.     –     Mál nr. 1410005 
 | |
| 
 Staðan á eldri byggðum frístundasvæðum. 
 | ||
| 
 Rætt um málið. Frestað til næsta fundar. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 5   
 | 
 Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.     –     Mál nr. 1311006 
 | |
| 
 Skýrsla HLH 
 | ||
| 
 Lagt fram lokaeintak skýrslunar. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 6   
 | 
 Boðun framhaldsaðalfundar SSV.     –     Mál nr. 1408003 
 | |
| 
 Oddviti sagði frá framhaldsaðalfundi SSV 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 7   
 | 
 Boðun XXVIII. landþings Sambands íslenskra sveitarfélaga.     –     Mál nr. 1407010 
 | |
| 
 Oddviti sagði frá landsþinginu sem fór fram í lok september s.l. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 8   
 | 
 Fundur sveitarfélaga á Vesturlandi með alþingismönnum.     –     Mál nr. 1409013 
 | |
| 
 Oddviti sagði frá fundinum. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 9   
 | 
 Ársfundur Úrvinnslusjóðs 2014     –     Mál nr. 1409014 
 | |
| 
 Oddviti sagði frá fundinum. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 10   
 | 
 Ársfundur Jöfnunarsjóðs 2014     –     Mál nr. 1409015 
 | |
| 
 Oddviti fór yfir ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 11   
 | 
 Fjármálaráðsstefna sveitarfélaga 2014     –     Mál nr. 1409016 
 | |
| 
 Oddviti fjallaði um ráðstefnunina sem er nýyfirstaðin. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 12   
 | 
 Samráðsfundur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaganna.     –     Mál nr. 1408004 
 | |
| 
 Oddviti fór yfir samráðsfundinn. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 13   
 | 
 Ljósleiðarakerfi Skorradalshrepps     –     Mál nr. 1204014 
 | |
| 
 Framhald málsins. 
 | ||
| 
 Málið rætt, frestað til næsta fundar. PD og JEE falið að afla gagna. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Fundargerðir til staðfestingar 
 | ||
| 
 14   
 | 
 Skipulags- og byggingarnefnd – 83     –     Mál nr. 1409004F 
 | |
| 
 Lögð fram fundargerð frá 9. október s.l. 
 | ||
| 
 Fundargerðin samþykkt í öllum 11 liðum. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 15   
 | 
 Aðalskipulags Skorradalshrepps     –     Mál nr. 1409002 
 | |
| 
 Staðfesting ráðherra á aðalskipulagi Skorradalshrepp 2010-2022 lág fyrir þann 15. okt. 2013. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd, í ljósi ungs aldurs aðalskipulagsins, að ekki verði farið í endurskoðun þess. 
 | ||
| 
 Hreppsnefnd samþykkir afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar og felur skipulagsfulltrúa að tilkynna Skipulagsstofnun um niðurstöðu sína. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 16   
 | 
 Breyting aðalskipulags, lóð Hvammskóga 18 og 20 í landi Hvamms     –     Mál nr. 1410004 
 | |
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að heimila breytingu aðalskipulags sbr.2. mgr. 36.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. 
 | ||
| 
 Hreppsenefnd samþykkir að heimila óverulega breytingu aðalskipulags sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að senda inn rökstudda tillögu til Skipulagsstofnunar og auglýsa niðurstöðu hreppsnefndar. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 17   
 | 
 Hvammsskógur 18 og 20, deiliskipulagsbreyting     –     Mál nr. 1409010 
 | |
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að heimila breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 íbúðarhúss, gestahúss og bílgeymslu að undangenginni breytingu aðalskipulags og breyting deiliskipulags grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Hvammsskóga 15, 17, 18, 19 og 22. 
 | ||
| 
 Hreppsnefnd samþykkir afgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. 
 | ||
| 
 | 
||
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
23:45.
