Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps
69. fundur
Þriðjudaginn 23. október 2012 kl. 13:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
Jón E. Einarsson, Jón Pétur Líndal, Pétur Davíðsson, Sæmundur Víglundsson og Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir.
Fundarritari var Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi.
Þetta gerðist:
| 
 Almenn mál 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Hálsar 5, nafnabreyting     –     Mál nr. 1210008 
 | |
| 
 Sótt er um nafnabreytingu á Hálsum 5 í Fagurhól 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd hafnar umsókn um nafnabreytingu. Samanber auglýst aðalskipulag skal heiti lóða tengjast nafni jarðar, annaðhvort allt nafnið eða sem forskeyti í upphafi eða enda nafns. Byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjanda. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Fundargerðir til staðfestingar 
 | ||
| 
 2   
 | 
 Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 15     –     Mál nr. 1209003F 
 | |
| 
 Fundargerð lögð fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 3   
 | 
 Aðalskipulag Skorradalshrepps, leiðrétting á greinargerð     –     Mál nr. 1210010 
 | |
| 
 Ranglega er farið með stefnu sveitarfélagsins varðandi háspennulínu Brennimelur-Blanda í auglýstri tillögu aðalskipulags, enda ekki samræmi á milli greinargerðar og sveitarfélagsuppdráttar. 
 | ||
| 
 Í kafla 5.17 undir málefni rafveitna er eftirfarandi texti tekinn út: „Landsnet stefnir að því að tvöfalda byggðalínuna frá tengivirki á Brennimel norður um land að Blöndustöð. Gert er ráð fyrir að í framtíðinni verði lögð 220 kV loftlína yfir Skarðsheiði meðfram Vatnshamralínu 1“ 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 4   
 | 
 Athugasemd v/lýsingar aðalsk.br. Hvalfj.sv. v/háspennulínu Brennimelur-Blanda     –     Mál nr. 1210009 
 | |
| 
 Stefna sveitarfélagsins samræmist ekki lýsingu aðalskipulagsbreytingar Hvalfjarðarsveitar varðandi háspennulínu Brennimelur-Blanda 
 | ||
| 
 Drög að bréfi til Hvalfjarðarsveitar lagt fram og samþykkt. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 5   
 | 
 Refsholt 18-III áfangi, deiliskipulagsbreyting     –     Mál nr. 1210007 
 | |
| 
 Sótt er um deiliskipulagsbreytingu varðandi þakgerð og utanhússklæðningu húss. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að grenndarkynna deiliskipulagsbreytingu sbr. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum Refsholts 17,20,37,39, Hálsaskógi sf. og landeiganda Hálsa. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 6   
 | 
 Tillaga að landsskipulagsstefnu 2013-2024, ósk um umsögn     –     Mál nr. 1209014 
 | |
| 
 Hreppsnefnd óskar eftir við skipulags- og byggingarnefnd að veita umsögn um tillögu landsskipulagsstefnu 2013-2024. 
 | ||
| 
 Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið og vinna drög að umsögn nefndarinnar 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Önnur mál 
 | ||
| 
 7   
 | 
 Fitjahlíð 33A, byggingarmál     –     Mál nr. 1210006 
 | |
| 
 Óleyfisframkvæmd. Eigendur húsanna á Fitjahlíð 33 og 33A hafa gert vegslóða frá Skorradalsvegi að húsum á framangreindum lóðum. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd harmar þessa óleyfisframkvæmd og fer fram á að bætt verði úr raski og land fært strax til fyrra horfs. Byggingarfulltrúa falið að fylgja málinu eftir. 
 | ||
| 
 | 
||
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
16:00.
