Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa Skorradalshrepps
37. fundur
Miðvikudaginn 25. maí 2016 kl. 17:00, hélt byggingarfulltrúi Skorradalshrepps afgreiðslufund. Þessir sátu fundinn: Jón E. Einarsson Formaður og Sæmundur Víglundsson Embættismaður.
Fundarritari var Sæmundur Víglundsson, Byggingarfulltrúi.
Þetta gerðist:
Byggingarleyfismál
| ||
1
|
Hvammsskógur 43, umsókn um byggingarleyfi – Mál nr. 1605005
| |
Sótt er um leyfi til að breyta og byggja við núverandi hús. Núverandi hús er 129,0 m2, eftir breytingu verður húsið 192,1 m2
| ||
Málinu vísað til Skipulags- og bygginganefndar þar sem ætlað byggingarmagn er umfram heimildir á lóð.
| ||
|
||
2
|
Vatnsendahlíð 180, byggingamál – Mál nr. 1605010
| |
Sótt er um að byggja frístundarhús 99,9 m2.
| ||
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa.
| ||
|
||
3
|
Vatnsendahlíð 87, byggingarmál – Mál nr. 1605008
| |
Sótt er um að byggja við núverandi frístundarhús á lóðinni. Núverandi byggingarmagn er 73,5 m2, verður eftir breytingu 88,1 m2.
| ||
Málinu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar þar sem ætlað byggingarmagn fer umfram heimildir á lóð.
| ||
|
||
4
|
Vatnsendahlíð 96, Umsókn um byggingarleyfi – Mál nr. 1605011
| |
Sótt er um leyfi til að byggja við núverandi frístundarhús 20 m2, eftir breytingu verður húsið 81,6 m2
| ||
Byggingaráformin eru samþykkt að teknu tilliti til athugasemda byggingarfulltrúa
| ||
|
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl.
18:00.