24 – Afgreiðslufundir byggingafulltrúa

Skorradalshreppur

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa Skorradalshrepps
24. fundur

Miðvikudaginn 19. febrúar 2014 kl. 19:00, hélt byggingarfulltrúi Skorradalshrepps afgreiðslufund. Þessir sátu fundinn: Jón E. Einarsson Formaður og Sæmundur Víglundsson Embættismaður.

Fundarritari var Sæmundur Víglundsson, Byggingarfulltrúi.

Þetta gerðist:

Byggingarleyfismál

1

Indriðastaðir 4, umsókn um bygg.gestahúss – Mál nr. 1303001

Halldór Guðmundsson, kt. 140548-2439, sækir um að byggja gestahús 35,2m2.

Afgreiðslu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar þar sem heildarbyggingarmagn á lóðinni fer umfram gildandi deiliskipulag þessarar lóðar.

2

Stóra-Drageyri 5, umsókn um byggingarleyfi – Mál nr. SK080066

Þór Magnússon, kt:181137-2239, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu, 8,5 m2, við núverandi frístundarhús á lóðinni Stóra-Drageyri 5,skv. teikningum, dags: 22.12.2013 frá JeES arkitektar, Jón Stefán Einarsson, kt: 270976-3609.

Afgreiðslu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar þar sem ekki er í gildi skipulag fyrir þetta svæði.

3

Vatnsendahlíð 15, bygg.mál – Mál nr. 1308002

1. Sigurður Hafsteinsson, kt.030859-7749, f.h. Klettaskjól ehf, kt.520406-018, sækir um að byggja við núverandi hús á Vatnsendahlíð 15, 35,0 m2, skv. teikningum frá Sigurði Hafsteinssyni, kt.030859-7749, dags: 25.11.2013

2. Auk þess er sótt um, skv. tölvupósti 03.12.13, stöðuleyfi fyrir smáhýsi sem fyrir er á lóðinni á meðan framkvæmdir við aðalhús standa yfir.

2. Umsókn um stöðuleyfi fyrir núverandi smáhýsi er hafnað.

1. Byggingaráformum er hafnað þar sem að með þessari umsókn þá fer heildarbyggingarmagn á lóðinni umfram heimdlir í deiliskipulagi

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl.

20.