131 – Hreppsnefnd

Skorradalshreppur

Hreppsnefnd Skorradalshrepps
Fundur nr. 131

miðvikudaginn 10. apríl 2019 kl.15:00, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Árni Hjörleifsson, Sigrún Guttormsdóttir Þormar og Ástríður Guðmundsdóttir.

Fundargerð ritaði:

Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.

Þetta gerðist:

Almenn mál

1.

Erindi frá Ungmennafélaginu Íslendingi vegna rekstrar á árinu 2018.- Mál nr. 1812007

Ritari Ungmennafélagsins Íslendings Guðni Páll Sæmundsson kom á fundinn og fór yfir stöðu Hreppslaugar.

Umræður um stöðu laugarinnar, og aðallega laugarhúsið og hituveitulögnina sem þarf að endurnýja. Málinu frestað.

Gestir

Guðni Páll Sæmundsson –

2.

Heimasíða sveitarfélagins.- Mál nr. 1902005

Lagður fram samningur við Netvöktun ehf.

Samingurinn samþykktur.

3.

Heimasíða sveitarfélagins.- Mál nr. 1902005

Lagður fram samningur við Fjólu Benediktsdóttur vegna umsjón með heimasíðunni.

Samningur samþykktur. JEE vék af fundi við afgreiðslu málsins.

4.

Ársreikningur 2018, bráðabirgðaniðurstaða ársins.- Mál nr. 1903003

Áfram til skoðunar.

Farið yfir stöðuna.

5.

Útivistarsvæði við frístundarbyggðir.- Mál nr. 1903004

Oddviti leggur fram minnisblað að stefnu.

Það samþykkt.

6.

Birkimói 1 – forkaupsréttur.- Mál nr. 1904005

Lagt fram erindi frá Íbúðalánasjóði hvort Skorradalshreppur nýtir forkaupsrétt sinn á Birkimóa 1.

Samþykkt að nýta ekki forkaupsrétt.

7.

Uppgjör lífeyrisskuldbindinga Brú lsj. starfamanna sveitarfélaga.- Mál nr. 1801005

Lagt fram minnisblað um eldri lífeyrismál.

Oddvita og SÞ falið að vinna málið áfram.

8.

Ályktun stjórnar Brákarhlíðar.- Mál nr. 1904006

Lögð fram ályktun stjórnar Brákarhlíðar frá 4. apríl s.l.

Fundargerðir til staðfestingar

9.

Skipulags- og byggingarnefnd – 123- Mál nr. 1904001F

Lögð fram fundargerð frá því í gær 9. apríl.

Fundargerðin samþykkt í öllum 7 liðum. PD tók ekki þátt í samþykkt á 7. lið.

9.1

1608008 – Húsafriðunarsjóður 2016

9.2

1608008 – Húsafriðunarsjóður 2016

9.3

1903006 – Friðslýsing í landi Vatnshornss og Fitja

9.4

1704011 – Indriðastaðir 1b, umsókn um byggingarleyfi

9.5

1902003 – Indriðastaðir, verslun og þjónusta, breyting aðalskipulags

9.6

1904001 – Dagverðarnes, lóð 202 ,breyting deiliskipulags

9.7

1904002 – Endurnýjun hitaveitu, Grund og Indriðastaðir, framkvæmdaleyfi

Skipulagsmál

10.

Dagverðarnes, lóð 202 ,breyting deiliskipulags- Mál nr. 1904001

Óskað er eftir breytingu deiliskipulags í landi Dagverðarness, á svæði 4, á lóð 202. Breytingin varðar skilmála skipulagsins, engar breytingar eru gerðar á uppdrætti þess. Breytingin felur í sér að heildar byggingarmagn lóðar er aukið úr 60 fm í 125 fm og að heimilt verði að byggja eitt gestahús á lóðinni auk frístundahúss. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að heimila óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og hún grenndarkynnt sbr. 44. gr. sömu laga fyrir lóðarhöfum á lóð Dagverðarness 107, 109, 204 og landeiganda.

Hreppsnefnd samþykkir að heimila óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og hún grenndarkynnt sbr. 44. gr. sömu laga fyrir lóðarhöfum á lóð Dagverðarness 107, 109, 204 og landeiganda. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

11.

Indriðastaðir, verslun og þjónusta, breyting aðalskipulags- Mál nr. 1902003

Lýsing breytingar aðalskipulags hefur verið kynnt fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum sbr. 1. mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í Morgunblaðinu þann 28.2.2019. Lýsingin lá frammi á skrifstofu og heimasíðu sveitarfélagsins frá 1. til 22.mars 2019. Einnig var opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 12. mars 2019, þar sem aðilar gátu kynnt sér efni lýsingarinnar. Engar ábendingar bárust um efni lýsingarinnar. Óskað var umsagnar hjá Skipulagsstofnun, Vegagerðinni, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, Slökkviliði Borgarbyggðar og landeiganda Indriðastaða. Umsagnir bárust frá Skipulagsstofnun, Vegegerðinni, Minjastofnun Íslands og Slökkviliðs Borgarbyggðar. Tekið hefur verið tillit til umsagna við framlagða tillögu breytingar aðalskipulags. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að tillaga breytingar aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar Dyrholt í landi Indriðastaða verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. með opnum degi á skrifstofu sveitarfélagsins og enn fremur verði tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga.

Skipulags- og byggingarnefnd leggur enn fremur til við hreppsnefnd að tillagan verði auglýst sbr. 1. mgr. 31. gr. sömu laga, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30.gr. sömu laga.

Hreppsnefnd samþykkir að tillaga breytingar aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar Dyrholt í landi Indriðastaða verði kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. með opnum degi á skrifstofu sveitarfélagsins og enn fremur verði tillagan kynnt sveitarstjórnum aðliggjandi sveitarfélaga.

Hreppsnefndin samþykkir enn fremur að tillagan verði auglýst sbr. 1. mgr. 31. gr. sömu laga, að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3. mgr. 30.gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Framkvæmdarleyfi

12.

Endurnýjun hitaveitu, Grund og Indriðastaðir, framkvæmdaleyfi- Mál nr. 1904002

Veitur ohf. óska eftir framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun hitaveitu í landi Indriðastaða og Grundar. Lagður er fram uppdráttur sem sýnir legu lagnar. Lagnaleið samræmist staðfestu Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022. Umsagnir Vegagerðarinnar, Minjastofnunar Íslands og Hafrannsóknarstofnunar liggja fyrir. Samþykki landeiganda Indriðastaða og Veiðifélags Skorradalsvatns liggur fyrir. Samþykki landeiganda Grundar, landareignar ON ohf. og Fiskistofu liggja ekki fyrir.Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að framkvæmdaleyfisumsókn verði grenndarkynnt sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem heimilar að stytta grenndarkynningartíma með því að landeigendur áriti kynningargögn. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. sömu laga þegar samþykki Fiskistofu og áritun landeiganda á grenndarkynningargögn liggur fyrir. PD vék af fundi skipulags- og byggingarnefndar undir afgreiðslu málsins.

Hreppsnefnd samþykkir að framkvæmdaleyfisumsókn verði grenndarkynnt sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem heimilar að stytta grenndarkynningartíma með því að landeigendur áriti kynningargögn.Hreppsnefnd samþykkir að skipulagsfulltrúa verði heimilt að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. sömu laga þegar samþykki Fiskistofu og áritun landeiganda á grenndarkynningargögn liggur fyrir. PD vék af fundi undir afgreiðslu málsins.