Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps
119. fundur
miðvikudaginn 5. desember 2018 kl.13:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn: Jón E. Einarsson, Pétur Davíðsson, Jón Friðrik Snorrason, Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir og Sæmundur Víglundsson.
Fundargerð ritaði:
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi.
SV sat fundinn undir 8.lið
Þetta gerðist:
Almenn mál
| ||
1.
|
Fornleifaskráning í Skorradal- Mál nr. 1411012
| |
Drög að seinni áfanga af tveimur aðalskráningar fornminja liggur fyrir. Seinni áfangi tekur til vestari hluta sveitarfélagsins og er unnin fyrir Skorradalshrepp af Fornleifastofnun Íslands ses.
| ||
Drög að skýrslu Fornleifastofnunar Íslands ses. lögð fram. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að skýrslan verði birt á heimasíðu sveitarfélagsins til rýnis.
| ||
2.
|
Húsafriðunarsjóður 2016- Mál nr. 1608008
| |
Frestur til að skila greinargerð ásamt sundurliðuðum kostnaði við verkefnið verndarsvæði Framdalsins í Skorradal til Minjastofnunar Íslands rann út 1. des. sl.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að óskað verði eftir auknum fresti eða fram til 1. mars 2019.
| ||
3.
|
Húsafriðunarsjóður 2016- Mál nr. 1608008
| |
Lögð er fram til umræðu tillaga að verndaráætlun fyrir Framdalinn sem ráðgjafafyrirtækið Alta ehf. hefur unnið fyrir Skorradalshrepp. Við mótun tillögunnar voru haldnir samráðsfundir með Fornleifastofnun Íslands, sem sá um aðalskráningu fornleifa og húsakönnun, Skógræktinni og Framdalsfélaginu. Enn fremur voru landeigendur, umráðamenn lands og félagi sumarhúsaeiganda á Fitjum boðaðir til sameiginlegs samráðsfundar.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að verndaráætlunin verði kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem íbúum og öðrum hagsmunaaðilum verði gefinn kostur á að kynna sér hana og koma með ábendingar eigi síðar en 2. janúar 2019.
| ||
Skipulagsmál
| ||
4.
|
Frístundabyggð í Hálsaskógi, 2. áfangi, breyting deiliskipulags- Mál nr. 1805007
| |
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. sipulagslaga nr. 123/2010 þann 26. október til 26. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust á grenndarkynningartíma.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags og skipulagsfulltrúa verði falið að senda samþykkta skipulagstillögu til Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
| ||
5.
|
Dagverðarnes, breyting aðalskipulags- Mál nr. 1812001
| |
Óskað er eftir breytingu aðalskipulags í landi Dagverðarness. Lögð er fram lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að hluti frístundabyggðasvæðis sem er 3,9 ha að stærð færist til og óbyggt svæði minnkar, en í þess stað verður skilgreint skógræktarsvæði. Breytingin varðar einungis svæði ofan Skorradalsvegar (508).
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að efri mörk skógræktarsvæðis verði í samræmi við efri mörk skógræktarsvæðis í landi Stálpastaða til að gæta samræmis í heildar yfirbragð skógræktar í dalnum.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að lýsingin verði kynnt fyrir almenningi og óskað verði umsagnar Skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Skógræktarinnar, Minjastofnunar Íslands, Umhverfisstofnunar og Slökkviliðs Borgarbyggðar að teknu tilliti til ábendinga nefndarinnar um afmörkun skógræktarsvæðis. | ||
6.
|
Fitjar, deiliskipulag íbúðalóða- Mál nr. 1712001
| |
Lýsing deiliskipulags íbúðalóða í landi Fitja var send til umsagnar Skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Minjastofnunar Íslands og kynnt almenningi. Umsagnir höfðu ekki áhrif á tillöguna. Lýsingin lá frammi á skrifstofu og á heimasíðu sveitarfélagsins frá 25. sept. til 9. okt. 2018. Opinn dagur var á skrifstofu sveitarfélagsins þann 25. sept 2018. Engar ábendingar bárust á auglýsingartíma lýsingar. Tillaga deiliskipulags tveggja íbúðalóða á Fitjum er lögð fram.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd hefur yfirfarið innsenda tillögu deiliskipulags. Nú liggur fyrir drög að tillögu verndaráætlunar Framdalsins og það er mat nefndarinnar að gera þurfi grein fyrir því hvernig tillaga deiliskipulags samræmist bæði stefnu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 og ofangreindrar verndaráætlunar. Málinu frestað.
| ||
Framkvæmdarleyfi
| ||
7.
|
Vegaframkvæmd í Hvammi og Dagverðarnesi, framkvæmdaleyfi- Mál nr. 1811007
| |
Vegagerðin sækir um framkvæmdaleyfi fyrir endurbyggingu á 3,7 km löngum kafla Skorradalsvegar (508) í landi Hvamms og Dagverðarness. Ennfremur er óskað framkvæmdaleyfis fyrir efnistöku 24.600 m3 við Kaldá ofan Mófellsstaðavegar(507) í landi Mófellsstaða. Efnistökusvæðið við Kaldá er nr. 9 skv. Aðalskipulag Skorradalshrepps 2010-2022 og er í flokki 1 sem þýðir að dýpt efnistökusvæðis má ekki vera meira en 1 m miða við yfirborð meðalrennslis árinnar. Efnistakan er ekki háð mati á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 106/2000.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir endurbyggingu Skorradalsvegar og efnistöku í Kaldá sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar samþykki landeiganda og umsögn Minjastofnunar Íslands liggur fyrir. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að efnistaka og frágangur efnistökusvæðis við Kaldá sé gerður í fullu samráði við veitufyrirtækin Ljóspunkt, Rarik og Veitur þar sem lagnir liggja um efnistökusvæðið. Skipulags- og byggingarnefnd bendir einnig á að huga þarf að burðarþoli Mófellsstaðavegar (507) vegna mikilla efnisflutninga úr námu A við Kaldá og mikilvægt að vegurinn verði styrktur og lagfærður á framkvæmdatíma. Lagt er til að framkvæmdaleyfi verði veitt til loka árs 2020.
| ||
8.
|
Hvammsskógur,umsókn um framkvæmdaleyfi göngustígs- Mál nr. 1607008
| |
Erindi barst frá Félagi sumarhúsaeigenda í Hvammi (FSH).Unnið hefur verið að lagningu göngustígs á milli lóðanna Hvammsskóga 30 og 32 sbr. veittu framkvæmdaleyfi útgefið þann 18.des. 2017. Framkvæmdum er ekki lokið þar sem ekki hefur náðs samkomulag við lóðarhafa lóðar Hvammsskóga 32 um flutning á hliði og heimreið. Hlið og heimreið lóðarinnar er ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að framkvæmdaleyfi verði framlengt til loka árs 2019 og skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
| ||
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl.
15:40.