Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps
67. fundur
Þriðjudaginn 31. júlí 2012 kl. 11:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
Jón Pétur Líndal, Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Sæmundur Víglundsson og Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir.
Fundarritari var Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi.
Þetta gerðist:
| 
 Fundargerðir til staðfestingar 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 14     –     Mál nr. 1207002F 
 | |
| 
 Fundargerð lögð fram 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 2   
 | 
 Dagverðarnes 129, umsókn um deiliskipulagsbreytingu     –     Mál nr. 1206003 
 | |
| 
 Grenndarkynningu er lokið. Athugasemd barst frá landeiganda og eiganda lóðar nr. 134. Aðrir grannar samþykktu kynninguna. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd hefur kynnt sér innsendar athugasemdir. Nefndin fellst ekki á þær og heimilar deiliskipulagsbreytingu lóðar 129 í Dagverðarnesi. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 3   
 | 
 Indriðastaðahlíð 114 og 116, deiliskipulagsbreyting     –     Mál nr. 1205005 
 | |
| 
 Sótt er um deiliskipulagsbreytingu um sameiningu lóða Indriðastaðahlíðar 114 og 116. Sameining lóða felur í sér að lóð 114 fellur niður, ásamt byggingarrétti þar sem byggingaréttur hefur verið nýttur á lóð 116. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að grenndarkynna deiliskipulagsbreytingu sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lóðarhöfum 108,113,115,117,119 og 120 við Indriðastaðahlíð og landeiganda Indriðastaða. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Framkvæmdarleyfi 
 | ||
| 
 4   
 | 
 Lögrétt í landi Horn     –     Mál nr. 1207004 
 | |
| 
 Sótt er um framkvæmdaleyfi til að reisa lögrétt í landi Horns 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að kynna framkvæmdaleyfi fyrir landeiganda og Vegagerðinni. 
 | ||
| 
 | 
||
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
12:45.
