Hreppsnefnd, fundur nr. 147
Dags. 9.7.2020
Þetta gerðist:
1. | Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir árið 2019- Mál nr. 2006007 | |
Umræða um ársreikning ársins 2019 og endurskoðendaskýrslu. Fulltrúar KPMG fóru yfir málið. | ||
Gestir | ||
Haraldur Örn Reynisson – KPMG – | ||
Magnús Jónsson – KPMG (í fjarfundarb.) – | ||
2. | Minnisblað oddvita (samningar)- Mál nr. 2007001 | |
Oddviti lagði fram minnisblaðið. | ||
Rætt um minnisblaðið. | ||
3. | Sérfræðiálit – vegna hugsanlegs viðauka við fjárhagsáæltun 2020- Mál nr. 2006008 | |
Lagt fram sérfræðiálit Ólafs Sveinssonar. | ||
4. | Fjárhagsáætlun 2020, viðauki- Mál nr. 2007002 | |
Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2020. | ||
Viðbótargjaldfærsla í viðaukanum verður tekin af handbæru fé. Sérfræðiálit telur breytinguna ekki hafa verulega íþyngjandi langtímaáhrif á rekstur og fjárhag sveitarsjóðs. Viðaukinn samþykktur. | ||
5. | Framlag til byggingar laugarhúss Hreppslaugar.- Mál nr. 2007003 | |
Oddviti leggur fram tillögu að skilyrðum vegna framlags vegna byggingar nýs laugarhús Hreppslaugar. | ||
Oddvita falið að vinna tillögurnar áfram fyrir næsta fund hreppsnefndar í samræmi við umræðu á fundinum. | ||
6. | Aðalfundur SSV þann 15. júní s.l.- Mál nr. 2007004 | |
Aðalfundur SSV var haldinn 15. júní s.l. | ||
Staðfestist hér sem var samþykkt fyrir aðalfund að Ástríður Guðmundsdóttir er aðalfulltrúi í stjórn SSV og Jón E Einarsson til vara. | ||
7. | Fjármál sveitarfélaga í kjölfar COVID-19- Mál nr. 2007006 | |
Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaganna vegna fjármála sveitarfélaga vegna COVID-19. | ||
Lagt fram. | ||
8. | Ráðstöfun styrks úr styrkvegasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2020- Mál nr. 2007007 | |
Oddviti sótti um styrk 28. des s.l. til Styrkvegasjóðs. Vegagerðin hefur samþykkt styrk 1,5 milljón til styrkvegarins frá Bakkakoti að Vatnshorni. |
||
Oddvita falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. | ||
9. | Minnisblað oddvita (vinnulag)- Mál nr. 2007008 | |
Lagt fram minnisblað oddvita. | ||
Málið rætt. PD lagði fram töflu um launataxta sveitarfélagins. Frestað til næsta fundar. | ||
Fundargerðir til staðfestingar |
||
10. | Skipulags- og byggingarnefnd – 140- Mál nr. 2006005F | |
Lögð fram fundargerð frá 6. júlí s.l. | ||
Fundargerðin samþykkt í öllum 9 liðum. | ||
10.1 | 2006004F – Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 56 | |
10.2 | 1911010 – Kæra nr. 118-2019, Fitjahlíð uppskipting lóðar | |
10.3 | 1806012 – Fitjahlíð 30, Umsókn um að skipta upp í tvær lóðir. | |
10.4 | 2004006 – Hvammsskógur neðri, Hvammsskógur 43 og Dynhvammur 5, br. dsk | |
10.5 | 1402009 – Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala | |
10.6 | 2006002 – Dagverðarnes 210, á svæði 4, breyting deiliskipulags | |
10.7 | 2006004 – Móar, breyting aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar | |
10.8 | 1911001 – Mófellsstaðir, framkvæmdaleyfi efnistöku í Kaldá | |
10.9 | 2006001 – Hornsá, umsókn um framkvæmdaleyfi | |
Skipulagsmál |
||
11. | Dagverðarnes 210, á svæði 4, breyting deiliskipulags- Mál nr. 2006002 | |
Málið var tekið fyrir á 139. fundi skipulags- og byggingarnefndar. Einnig er óskað eftir því að breyta þakformi, þannig að það verði frjálst. Breytingin samræmist Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2020. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að heimila óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt sbr. 44. gr. sömu laga fyrir lóðarhöfum Dagverðarness 131, 138, 208, 212 og landeiganda. |
||
Hreppsnefnd samþykkir að heimila óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og hún grenndarkynnt sbr. 44. gr. sömu laga fyrir lóðarhöfum Dagverðarness 131, 138, 208, 212 og landeiganda. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. | ||
12. | Fitjahlíð 30, Umsókn um að skipta upp í tvær lóðir.- Mál nr. 1806012 | |
Á 139. fundi hreppsnefndar, þann 23.10.2019, tók nefndin þá ákvörðun að umsókn um skiptingu lóðarinnar Fitjahlíð 30 , og sameiningu hvors helmings hennar við lóðirnar Fitjahlíð 28 og 32, skyldi synjað. Var umsóknin lögð fram á grundvelli 14. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna. Umsækjendur sættu sig ekki við niðurstöðu málsins og kærðu afgreiðslu þess til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Með úrskurði sínum dags. 29. maí 2020, mál nr. 118/2019, felldi úrskurðarnefndin úr gildi áðurnefnda ákvörðun hreppsnefndar. Þar sem fyrri afgreiðsla hreppsnefndar hefur verið felld úr gildi telst áðurnefnd umsókn óafgreidd hjá Skorradalshrepp. Tekur skipulags- og byggingarnefnd því málið aftur til umfjöllunar og afgreiðslu nú. Í áðurnefndum úrskurði úrskurðarnefndarinnar, og í úrskurði vegna sama máls nr. 21/2019, kemur fram að efnislega verði að líta svo á að umrædd umsókn feli efnislega í sér beiðni um skiptingu lóða og breytingu á lóðamörkum og benti úrskurðarnefndin í því sambandi á það að ákvarðanir um lóðir og lóðamörk væru teknar á grundvelli skipulagslaga nr. 123/2010 og að slíkar ákvarðanir gætu annað hvort verið teknar með deiliskipulagsgerð, sbr. 1. mgr. 37. gr. laganna, eða með samþykki sveitarstjórnar, sbr. 1. mgr. 48. gr. sömu laga. Með vísan til þeirrar heimildar sem 1. mgr. 48. gr. veiti sveitarstjórnum að skipta lóðum og ákveða lóðamörk án deiliskipulagsgerðar hafi hreppsnefnd ekki verið stætt á því að synja umsókninni einvörðungu með vísan til þess að ekki lægi fyrir deiliskipulag umræddra lóða. Tillaga skipulags- og byggingarnefndar til hreppsnefndar vegna umsóknarinnar er eftirfarandi: |
||
Hreppsnefnd samþykkir afgreiðslu 140. fundar skipulags- og byggingarnefndar þann 6. júlí 2020 um að synja umsókn á grundvelli fyrirliggjandi rökstuðnings nefndarinnar. | ||
13. | Móar, breyting aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar- Mál nr. 2006004 | |
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 12. maí 2020 að auglýsa breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 í landi Móa samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland í gildandi aðalskipulagi. Tillaga að aðalskipulagsbreytingu snýr að því að hluti svæðisins verður skilgreindur sem verslunar-og þjónustusvæði. Heimilað verður bygging á gestahúsum, geymslu, gróðurhúsi, kaldri vélargeymslu, þjónustuhúsi og tjaldsvæði, auk þess að þar megi vera föst búseta. Gisting á svæðinu verður fyrir allt að 50 manns. Athugasemdum/ábendingum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is “ merkt Móar“ fyrir 24. júlí 2020. Skipulags- og byggingarnefnd hefur engar athugasemdir varðandi breytingu aðalskipulags Hvalfjarðarsveit er varðar Móa. Skipulagsfulltrúa falið að koma því á framfæri við Hvalfjarðarsveit. |
||
Hreppsnefnd hefur engar athugasemdir varðandi breytingu aðalskipulags Hvalfjarðarsveit er varðar Móa. Skipulagsfulltrúa falið að koma því á framfæri við Hvalfjarðarsveit. | ||
14. | Hvammsskógur neðri, Hvammsskógur 43 og Dynhvammur 5, br. dsk- Mál nr. 2004006 | |
Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2020 m.s.br. þann 11. maí til og með 11. júní 2020. Engin athugsemd barst á grenndarkynningartíma. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýst um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. | ||
Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. og skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu breytingar deiliskipulags til Skipulagsstofnunar og birta auglýst um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. | ||
Framkvæmdarleyfi |
||
15. | Mófellsstaðir, framkvæmdaleyfi efnistöku í Kaldá- Mál nr. 1911001 | |
Málinu var frestað á 131. fundi skipulags- og byggingarnefndar. Fundur var haldinn með fulltrúa landeiganda þann 2. júní 2020. Samkvæmt umsögn Fiskistofu fellst hún á að tekið sé 3500 m3 af möl og umsækjandi lagfæri bakka og árfarveg Kaldár á um 800 m svæði. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúa verði falið að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á grundvelli umsagnar Fiskistofu og að samþykki allra landeiganda liggi fyrir. |
||
Hreppsnefnd samþykkir að skipulagsfulltrúa verði falið að veita framkvæmdaleyfi sbr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á grundvelli umsagnar Fiskistofu og að samþykki allra landeiganda liggi fyrir. | ||
Fleira ekki gert.