Tillaga að breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 Í landi Indriðastaða
Hreppsnefnd auglýsir hér með tillögu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Indriðastaða á svæði sem kallast Dyrholt skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að svæði sem eru skilgreind, annars vegar sem verslun- og þjónusta og er 2 ha að stærð, og hins vegar opið svæði til sérstakra nota og er 5 ha að stærð, verði breytt í samfellda frístundabyggð.
Breytingartillagan er til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík og er einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 30. september til og með 11. nóvember 2019.
Hægt er að hafa samband við skipulagsfulltrúa varðandi ofangreinda tillögu breytingar aðalskipulags um netfangið skipulag@skorradalur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna.
Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 11. nóvember 2019.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Tillaga að breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 Í landi Dagverðarness
Hreppsnefnd auglýsir hér með tillögu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Dagverðarness á svæði ofan Skorradalsvegar (508) skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér aðhluti frístundabyggðasvæðis sem er 3,9 ha að stærð færist til og óbyggt svæði minnkar, en í þess stað verður skilgreint skógræktarsvæði.
Breytingartillagan er til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík og er einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 30. september til og með 11. nóvember 2019.
Hægt er að hafa samband við skipulagsfulltrúa varðandi ofangreinda tillögu breytingar aðalskipulags um netfangið skipulag@skorradalur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann
11. nóvember 2019.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is .
Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Breyting Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022
Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt
KYNNING – OPINN DAGUR
Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 131. fundi sínu þann 10. apríl 2019 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Indriðastaða skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að svæði sem eru skilgreind, annars vegar sem verslun- og þjónusta og er 2 ha að stærð, og hins vegar opið svæði til sérstakra nota og er 5 ha að stærð, verði breytt í samfellda frístundabyggð.
Breytingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is. Opinn dagur verður á skrifstofu sveitarfélagsins þann 28. maí 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér tillögu breytingar aðalskipulags.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Tillaga nýs deiliskipulags tveggja íbúðalóða
Í landi Fitja
KYNNING – OPINN DAGUR
Tillaga nýs deiliskipulags tveggja íbúðalóða í landi Fitja er kynnt íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum með opnum degi sbr. 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.
Deiliskipulagstillagan tekur til afmörkunar tveggja íbúðalóða. Samkvæmt tillögu deiliskipulags er heildar byggingarmagn 200 fm á hvorri lóð og hámarks mænishæð verði 7.5 m frá óhreyfðu landi.
Tillaga deiliskipulags liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is/deiliskipulag í landi Fitja Opinn dagur verður á skrifstofu sveitarfélagsins þann 28. maí 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér tillögu nýs deiliskipulags.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Tillaga að verndarsvæði í byggð fyrir framdalinn í Skorradal
Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 129. fundi sínum þann 20. febrúar 2019 að auglýsa tillögu að verndarsvæði í byggð fyrir framdalinn í Skorradal, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga um verndarsvæði í byggð nr. 87/2015.
Í megin dráttum felur tillagan í sér að vernda svipmót búsetulandslags framdalsins auk þess að viðhalda þekkingu um fornar þjóðleiðir um svæðið.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 1. mars til og með 12. apríl 2019.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugsemdr eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 12. apríl 2019. Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Tillaga að verndarsvæði í byggð fyrir framdalinn í Skorradal
Tillaga nýs deiliskipulags í landi Dagverðarness á svæði 5, lóðir 58-61
Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 129. fundi sínum þann 20. febrúar 2019 að auglýsa fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum tillögu deiliskipulags fjögurra frístundalóða í landi Dagverðarness á svæði 5, sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br.. Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnisins þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022.
Í megin dráttum felur skipulagstillagan í sér 4 nýjar frístundalóðir, Dagverðarnes 58, 59, 60 og 61, á 2,7 ha svæði.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 4. mars til og með 15. apríl 2019.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með athugasemdir við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 15. apríl 2019. Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.
Tillaga nýs deiliskipulags
Í landi Dagverðarness á svæði 5, lóðir 58-61
Lýsing breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022
Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt
Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á 129. fundi sínum þann 20. febrúar 2019 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Indriðastaða skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að svæði sem eru skilgreind, annars vegar sem verslun- og þjónusta og er 2 ha að stærð, og hins vegar opið svæði til sérstakra nota og er 5 ha að stærð, verði breytt í samfellda frístundabyggð.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 Hvanneyri, 311 Borgarnes og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 1. mars til og með 22. mars 2019. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 12. mars 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 22. mars 2019. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Lýsing beytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022
Í landi Indriðastaða á svæði er nefnist Dyrholt
Lýsing á breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 í landi Dagverðarnes
Hreppsnefnd samþykkti á 127. fundi sínum þann 12. desember 2018 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Dagverðarness skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að hluti frístundabyggðasvæði, sem er 3,9 ha að stærð, færist til og óbyggt svæði minnkar, en í þess stað verður skilgreint skógræktarsvæði.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 25. janúar til og með 19. febrúar 2019. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 29. janúar 2019 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi þann 19. febrúar 2019. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.
Lýsing á breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 í landi Dagverðarnes
Lýsing deiliskipulags í landi Fitja
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti á 115. fundi sínum þann 7. júní 2018 að kynna fyrir almenningi og öðrum hagsmunaaðilum lýsingu deiliskipulags er varðar tvær íbúðalóðir í landi Fitja skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagstillagan í sér að fyrirhugað er að skilgreina tvær íbúðalóðir á Fitjum.
Lýsingin liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri og á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 25. september og til 9. október 2018. Einnig verður opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 25. september 2018 milli kl. 10 og 12 þar sem allir eru velkomnir til að kynna sér efni lýsingarinnar.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma með ábendingar um efni lýsingarinnar. Ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 9. október 2018. Skila skal ábendingum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is.
Lýsing deiliskipulags í landi Fitja
Breyting á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022
Í landi Fitja
Hreppsnefnd samþykkti á 115. fundi sínum þann 1. mars 2018 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br. er varðar niðurfellingu verslunar- og þjónustusvæðis í landi Fitja.
Það er mat hreppsnefndar að niðurfelling umrædds svæðis í aðalskipulagi hefur engin áhrif á landnotkun, né einstaka aðila eða menningarlandslag Framdalsins.
Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar og er einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is.Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Hér er hægt að sjá tillögu að breytingu Aðalskipulags
Tillaga að breytingu Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022
Í landi Indriðastaða og Mófellsstaða
Hreppsnefnd auglýsir hér með tillögu breytingar Aðalskipulags Skorradalshrepps 2010-2022 er varðar breytta landnotkun í landi Indriðastaða og Mófellsstaða skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s. br..
Í megin dráttum felur skipulagsbreytingin í sér að frístundabyggðasvæði er stækkað, eitt efnistökusvæði er tekið út, afmörkun tveggja annarra efnistökusvæða er breytt og vatnsból ásamt vatnsverndarsvæði er skilgreint.
Breytingartillagan er til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes og hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík og er einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.skorradalur.is frá 19. mars til og með 30. apríl 2018.
Hægt er að hafa samband við skipulagsfulltrúa varðandi ofangreinda tillögu breytingar aðalskipulags um netfangið skipulag@skorradalur.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en þann 30. apríl 2018. Skila skal athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins að Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri, 311 Borgarnes eða á netfangið skipulag@skorradalur.is . Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.
Skipulagsfulltrúi Skorradalshrepps
Hér er er hægt að sjá kort af auglýstri tillögu á breytingu Aðalskipulags