Hreppsnefnd Skorradalshrepps
Miðvikudaginn 10. febrúar 2010 kl. 21:00, hélt Hreppsnefnd Skorradalshrepps fund. Þessir sátu fundinn: Davíð Pétursson, S. Fjóla Benediktsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Pétur Davíðsson og K. Hulda Guðmundsdóttir.
Fundarritari var  S. Fjóla Benediktsdóttir, varaoddviti.
Þetta gerðist:
| 
 Almenn erindi 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Framlög á fjárlögum 2010     –     Mál nr. 1001014 
 | |
| 
 Lagt fram bréf frá fjárlaganefnd Alþingis um framlag á fjárlögum 2010. 
 | ||
| 
 Bréfið kynnt 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 2   
 | 
 Borgfirðingabók 2010     –     Mál nr. 1001017 
 | |
| 
 Lagt fram erindi 
 | ||
| 
 Huldu falið að rita grein um „Hættumat og viðbragðsáætlanir vegna sinu og skógarelda“. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 3   
 | 
 Beiðni um afhendingu jafnréttisáætlunar, ásamt framkvæmdaráætlun     –     Mál nr. 0912003 
 | |
| 
 Erindi frá Jafnréttistofu 
 | ||
| 
 Oddvita falið að svara erindinu. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 4   
 | 
 Beiðni um styrk     –     Mál nr. 1001012 
 | |
| 
 Lögð fram beiðni frá Neistanum – félagi slökkviliðsmanna í Borgarbyggð og nágrenni. 
 | ||
| 
 Samþykkt að veita þeim 30.000 kr. í styrk til að efla innra starf félagsins. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 5   
 | 
 Vegna refaveiða á uppgjörstímabilinu 1. september 2009 til 31. ágúst 2010     –     Mál nr. 0911001 
 | |
| 
 Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar um breytta ákvörðun varðandi refa- og minkaveiðar 
 | ||
| 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 6   
 | 
 Drög að útliti bréfsefnis fyrir sveitarfélagið     –     Mál nr. 1001010 
 | |
| 
 Lagðar fram tillögur að uppsetningu bréfsefnis. 
 | ||
| 
 Huldu falið að ganga frá uppsetningu bréfsefnis.  
 | ||
| 
 | 
||
| 
 7   
 | 
 Bréf Heilbrigðiseftirlits Vesturlands     –     Mál nr. 1001009 
 | |
| 
 Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands, dags 13. janúar s.l. 
 | ||
| 
 Lagt fram til kynningar. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 8   
 | 
 Fjárhagsáætlun 2010     –     Mál nr. 0912001 
 | |
| 
 Lögð fram til seinni umræðu fjárhagsáætlun fyrir árið 2010. 
 | ||
| 
 Fjárhagsáætlun samþykkt. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 9   
 | 
 Þriggja ára fjárhagsáætlun 2011-2013     –     Mál nr. 1002004 
 | |
| 
 Lögð fram til fyrri umræðu þriggja ára áætlun. 
 | ||
| 
 Samþykkt að vísa henni til seinni umræðu. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Almenn erindi – umsagnir og vísanir 
 | ||
| 
 10   
 | 
 Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2009     –     Mál nr. 1001022 
 | |
| 
 Lagt fram uppgjör frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna ársins 2009 
 | ||
| 
 Uppgjörið kynnt. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 11   
 | 
 Íbúaskrá Skorradalshrepps 2009     –     Mál nr. 1001018 
 | |
| 
 Íbúaskráin lögð fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 12   
 | 
 Starf sjálfsboðaliða að umhverfismálum.     –     Mál nr. 1002005 
 | |
| 
 Hulda kynnti mögulegt starf sjálfsboðaliða í samstarfi við Umhverfisstofnun. 
 | ||
| 
 Málið kynnt, Hulda á væntanlega fund með Umhverfisstofnun um framhald málsins. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Fundargerðir til staðfestingar 
 | ||
| 
 13   
 | 
 Fundargerð 42. fundar skipulags- og bygginganefndar     –     Mál nr. 1002002 
 | |
| 
 Lögð fram 42. fundargerð skipulags- og byggingarnefndar. 
 | ||
| 
 Varðandi lið 3 er óskar hreppurinn eftir því að tekinn verði mynd af bústaðnum áður en hann verður rifin niður þar sem bústaðurinn er með þeim fyrstu sem byggður var í dalnum. Aðrir liðir eru samþykktir. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Fundargerðir til kynningar 
 | ||
| 
 14   
 | 
 Fundargerð nr. 771     –     Mál nr. 1002001 
 | |
| 
 Lögð fram fundargerð nr. 771 hjá Sambandi íslenskrar sveitarfélaga 
 | ||
| 
 Lagt fram til kynningar. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 15   
 | 
 Fundur nr. 70     –     Mál nr. 1001011 
 | |
| 
 Lögð fram fundargerð nr. 70 Faxaflóahafna sf. 
 | ||
| 
 Fundargerðin kynnt 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 16   
 | 
 Svæðisskipulagsbreyting     –     Mál nr. 1002003 
 | |
| 
 Breyting á staðfestu svæðisskipulagi norðan Skarðsheiðar 1997-2017. Tillagan felur í sér að breyta frístundalóð í íbúðarhúsalóð fyrir starfsmann lögbýlsins Vatnsenda og nær breytingin eingöngu til lóðar nr. 186. 
 | ||
| 
 Samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að kynna málið fyrir Borgarbyggð og vinna málið áfram ef enginn athugasemd berst. 
 | ||
| 
 | 
||
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
00:00.
