Mánudaginn 24. febrúar 2014 kl. 20:30, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
Davíð Pétursson, Pétur Davíðsson, K. Hulda Guðmundsdóttir, Jón E. Einarsson og Guðrún J. Guðmundsdóttir.
Fundarritari var Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.
Almenn mál
| ||
1
|
Sameiningarkostir og samstarf nágrannasveitarfélaganna. – Mál nr. 1401002
| |
Fyrsta verk fundarins er opnun skoðanakönnunar um vilja íbúa til sameiningar við annað hvort Borgarbyggð eða Hvalfjarðarsveit eða áframhaldandi sjálfstæði.
47 íbúar sem voru á kjörskrá Skorradalshrepps þann 6. febrúar s.l. sem fengu skoðanakönnunina senda í pósti. | ||
Hrefna Jónsdóttir, framkvæmdarstjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi tók upp könnunina og taldi saman atkvæðin.
39 svör bárust, eða 83% þátttaka. Niðurstaðan varð eftirfarandi: Valmöguleikar: Skorradalshreppur tekur upp sameiningarviðræður við Borgarbyggð 15 atkvæði eða 38,5% Skorradalshreppur tekur upp sameiningarviðræður við Hvalfjarðarsveit 1 atkvæði eða 2,6% Skorradalshreppur stendur áfram sem sjálfstætt sveitarfélag 23 atkvæði eða 59,0% Hreppsnefnd tekur ákvörðun í næstu viku um niðurstöðu könnuninnar, sbr. fund hreppsnefndar 11. febrúar s.l. | ||
|
||
2
|
Starfssemi SSV – framtíðarstefna. – Mál nr. 1308004
| |
Lögð fram skýrsla starfshóps um framtíð SSV.
| ||
Hrefna Jónsdóttir framkvæmdarstjóri fór yfir niðurstöðu starfshópsins. Hreppsnefnd tekur undir niðurstöðu starfshópsins.
| ||
|
||
3
|
Umsókn um húsaleigubætur. – Mál nr. 1310002
| |
Lögð fram umsókn um húsaleigubætur.
| ||
Samþykkt að greiða húsaleigubætur samkvæmt framlögðum útreikningi.
| ||
|
||
4
|
Hreppslaug – undirbúningur friðlýsingar – Mál nr. 1401006
| |
Lagt fram erindi frá Minjastofnun Íslands þar sem tilkynnt er að hefja eigi undirbúning að tillögu til ráðherra um friðlýsingu Hreppslaugar.
| ||
Hreppsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og styður friðlýsinguna.
| ||
|
||
5
|
Erindi frá Ungmennafélaginu Íslendingi vegna Hreppslaugar. – Mál nr. 1301013
| |
Ulla Pedersen formaður Ungmennafélagins mætti á fundinn.
| ||
Rætt var um málefni Hreppslaugar.
| ||
|
||
6
|
Erindi frá stjórn sumarhúsaeiganda í Fitjahlíð. – Mál nr. 1401004
| |
Oddviti lagði fram tölur um áætlaðan kostnað frá Vegagerðinni.
| ||
|
||
7
|
Erindi frá Vélabæ ehf. – Mál nr. 1401005
| |
Tilkynning um hækkun hlutafjár Vélabæjar ehf. og rétt Skorradalshrepps til kaupa á víðbótarhlutafé.
| ||
|
||
8
|
Starfsemi Menningarráðs Vesturlands og menningarfulltrúa Vesturlands – Mál nr. 1401008
| |
Lagt fram afrit af bréfi Menningarfulltrúa Vesturlands um starfsemi Menningarráðs.
| ||
|
||
9
|
Áskorun til sveitarstjórna – Mál nr. 1401009
| |
Erindi frá Stéttarfélagi Vesturlands um opinber útboð og innkaup.
| ||
Lagt fram.
| ||
|
||
10
|
Erindi frá Freyjukórnum – Mál nr. 1401011
| |
Óskað er eftir stuðningi við verkefnið Syngjandi konur á Vesturlandi.
| ||
Samþykkt að veita 10.000 kr. í stuðning við verkefnið.
| ||
|
||
11
|
Kynningafundur vegna Landskipulagstefnu 2015-2026 – Mál nr. 1402008
| |
Kynningafundur verður í Borgarnes þann 27. febrúar n.k.
| ||
Samþykkt að oddviti fari.
| ||
|
||
Fundargerðir til kynningar
| ||
12
|
Hreppsnefnd – 64 – Mál nr. 1402003F
| |
Lögð fram fundargerð frá 3. febrúar s.l.
| ||
|
||
13
|
Hreppsnefnd – 65 – Mál nr. 1402006F
| |
Lögð fram fundargerð frá 11. febrúar s.l.
| ||
|
23:30.