63 – Hreppsnefnd

Skorradalshreppur

Hreppsnefnd Skorradalshrepps

Miðvikudaginn 8. janúar 2014 kl. 16:30, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:

Davíð Pétursson, Guðrún Guðmundsdóttir, Pétur Davíðsson, K. Hulda Guðmundsdóttir og Jón E. Einarsson.

Fundarritari var Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.

Hreppsnefnd Hvalfjarðarsveitar ásamt sveitarstjóra boðuð til fundar við Hreppsnefnd Skorradalshrepps á Hvanneyri.
Þetta gerðist:

Almenn mál

1

Sameiningarkostir og samstarf nágrannasveitarfélaganna. – Mál nr. 1401002

DP bauð fundarmenn velkomna. Gaf síðan sveitarsjóra Hvalfjarðarsveitar orðið. Laufey Jóhannesdóttir, sveitarstjóri ræddi sína sýn á samstarf og sameiningu. PD fór yfir mál Skorradalshrepps eftir málaflokkum og útskýrði stöðuna.

Fundarmenn ræddu á breiðum grundvelli um samstarf og hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna.

Sveitarstjórn Skorradalshrepps óskar eftir að hafa Hvalfjarðarsveit sem valkost í væntanlegri könnun meðal íbúa í Skorradalshreppi og í úttekt sem verður gerð á stöðu Skorradalshrepps í samanburði við nágranna sveitarfélög. Erindi verður sent Hvalfjarðarsveit.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl.

18:15.