Hreppsnefnd Skorradalshrepps
Fundur nr. 81
Miðvikudaginn 8. apríl 2015 kl. 21:00, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
S. Fjóla Benediktsdóttir, Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Árni Hjörleifsson og Sigrún Guttormsdóttir Þormar.
Fundarritari var  Birgitta Sigþórsdóttir, starfsmaður á skrifstofu.
Þetta gerðist:
| 
 Almenn mál 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Samningar vegna grunnskóla, leikskóla og fleira við Borgarbyggð     –     Mál nr. 1503005 
 | |
| 
 | 
 Oddviti fer yfir stöðu mála. 
 | |
| 
 | 
 Málinu er frestað. Oddvita er falið að gera tillögur að samningum við Borgarbyggð fyrir næsta fund. 
 | |
| 
 | 
 | 
 | 
| 
 2   
 | 
 Samstarf um íþrótta- og æskulýðsmál.     –     Mál nr. 1409012 
 | |
| 
 | 
 Samningur við UMSB. 
 | |
| 
 | 
 Samþykkt og oddvita falið að undirrita samninginn. 
 | |
| 
 | 
 | 
 | 
| 
 3   
 | 
 Íbúaskrá 1. desember 2014     –     Mál nr. 1504001 
 | |
| 
 | 
 Lögð fram íbúaskrá 1. desember s.l. frá Þjóðskrá Íslands. 
 | |
| 
 | 
 Lagt fram. 
 | |
| 
 | 
 | 
 | 
| 
 4   
 | 
 Grundartangi Þróunarfélag ehf, drög að samþykktum.     –     Mál nr. 1503008 
 | |
| 
 | 
 Oddviti fer yfir málið. 
 | |
| 
 | 
 Lagðar fram athugasemdir Kjósahrepps. Oddvita falið koma á framfæri athugasemdum hreppsnefndar í samræmi við umræður á fundinum. 
 
Einnig lögð fram bókun Faxaflóahafna frá 13 mars s.l. um stofnun Grundartanga Þróunarfélags ehf. Oddvita er falið koma á framfæri athugasemdum vegna bókunar stjórnar Faxaflóahafna um fulltrúa í starfshóp.  | |
| 
 | 
 | 
 | 
| 
 Fundargerðir til staðfestingar 
 | ||
| 
 5   
 | 
 Skipulags- og byggingarnefnd – 88     –     Mál nr. 1503002F 
 | |
| 
 | 
 Lögð fram fundargerð frá 24. mars s.l. 
 | |
| 
 | 
 Fundargerðin samþykkt í öllum 5 liðum. 
 | |
| 
 | 
 5.1  
 | 
 1311002 – Dagverðarnes 72-breyting deiliskipulags 
 | 
| 
 | 
 | 
 SGÞ tók ekki þátt í afgreiðslu á þessum lið. 
 | 
| 
 | ||
| 
 | 
 5.2  
 | 
 1502001 – Dagverðarnes, deiliskipulag lóða 56 og 57, svæði 8 
 | 
| 
 | 
 5.3  
 | 
 1503004 – Mófellsstaðir 2 
 | 
| 
 | 
 5.4  
 | 
 1501001 – Tillaga að landsskipulagsstefnu 2015-2026 
 | 
| 
 | 
 5.5  
 | 
 1405003 – Könnun um landnotkun í dreifbýli 
 | 
| 
 | 
 | 
 | 
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 6   
 | 
 Dagverðarnes 72-breyting deiliskipulags     –     Mál nr. 1311002 
 | |
| 
 | 
 Á grundvelli álits lögfræðings leggur skipulags- og byggingarnefnd til við hreppsnefnd að taka ekki tillit til innsendrar athugasemdar og samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags á lóð Dagverðarnes 72 á svæði 5. 
 | |
| 
 | 
 Hreppsnefnd samþykkir óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að birta niðurstöðuna í B-deild Stjórnartíðinda. 
 
SGÞ tók ekki þátt í afgreiðslu á þessum lið.  | |
| 
 | 
 | 
 | 
| 
 7   
 | 
 Dagverðarnes, deiliskipulag lóða 56 og 57, svæði 8     –     Mál nr. 1502001 
 | |
| 
 | 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að auglýsa deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 56 og 57 á svæði 8 sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að teknu tilliti til athugasemda nefndarinnar. Ekki er þörf á lýsingu skipulagsverkefnisins þar sem allar megin forsendur deiliskipulags liggja fyrir í Aðalskipulagi Skorradalshrepps 2010-2022. Skipulagsfulltrúa falið að koma athugasemdum á framfæri við skipulagshönnuð. 
 | |
| 
 | 
 Hreppsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulag frístundalóða Dagverðarness 56 og 57 á svæði 8 sbr. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
 | |
| 
 | 
 | 
 | 
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
24:00.
