Hreppsnefnd Skorradalshrepps
Fundur nr. 84
Miðvikudaginn 8. júlí 2015 kl. 20:30, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
S. Fjóla Benediktsdóttir, Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Árni Hjörleifsson og Sigrún Guttormsdóttir Þormar. Fundarritari var Birgitta Sigþórsdóttir.
Þetta gerðist:
| 
 Almenn mál 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Breyttar forsendur í grunnskólamálum     –     Mál nr. 1506011 
 | |
| 
 Lagðar fram bókanir frá fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar frá 11. júní s.l. er varðar breyttar forsendur í grunnskólamálum.
 
Einnig lagt fram minnisblað frá 30.3.2009 varðandi svæðisskipulag.  | ||
| 
 Samþykkt að PD og JEE fundi með Skipulagsstofnun og að oddviti vinni málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 2   
 | 
 Siðareglur kjörinna fulltrúa Skorradalshrepps     –     Mál nr. 1506001 
 | |
| 
 Áframhald fyrri umræðu. 
 | ||
| 
 Samþykkt að vísa reglunum til seinni umræðu. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 3   
 | 
 Samstarf við N4, fjármögnun þátta um sveitarfélög á Vesturlandi.     –     Mál nr. 1506012 
 | |
| 
 Stjórn SSV kannar áhuga sveitarfélaga á Vesturlandi um samstarf við sjónvarpsstöðina N4 til að fjármagna þáttagerð um Vesturland. 
 | ||
| 
 Ákveðið að taka ekki þátt í verkefninu að svo stöddu. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 4   
 | 
 3. mánaðauppgjör 2014     –     Mál nr. 1405011 
 | |
| 
 Lagt fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 5   
 | 
 6 mánaðauppgjör 2014     –     Mál nr. 1408007 
 | |
| 
 Lagt fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 6   
 | 
 9 mánaðauppgjör 2014     –     Mál nr. 1410015 
 | |
| 
 Lagt fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 7   
 | 
 12 mánaða bráðabirgðauppgjör 2014     –     Mál nr. 1505017 
 | |
| 
 Lagt fram. 
 | ||
| 
 FB og JEE lögðu fram eftirfarandi bókun: „Hefðu viljað sjá 3 mán. uppgjör 2015 og afgreiða ársreikning 2014 en ekki vera taka fyrir 3, 6 og 9 mán. uppgjör 2014. Hefðu viljað taka fyrir umrædd uppgjör á árinu 2014“ 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Almenn mál – umsagnir og vísanir 
 | ||
| 
 8   
 | 
 Mál velferðarnefndar Alþingis nr. 788 lagt fram til umsagnar     –     Mál nr. 1507001 
 | |
| 
 Frumvarp til laga um húsnæðisbætur, umsögn skal berast fyrir 17. ágúst nk. 
 | ||
| 
 Lagt fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Fundargerðir til kynningar 
 | ||
| 
 9   
 | 
 Stjórnarfundur nr. 117 hjá SSV þann 10.6.2015     –     Mál nr. 1506009 
 | |
| 
 Lagt fram 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 10   
 | 
 Stjórnarfundur nr. 118 hjá SSV þann 30.6.2015     –     Mál nr. 1506010 
 | |
| 
 Lagt fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 11   
 | 
 Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála.     –     Mál nr. 1303002 
 | |
| 
 Úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála mál nr. 26/2013 dagsett 2. júlí 2015 lagður fram. 
 | ||
| 
 Lagður fram. Málið er í vinnslu hjá byggingar-og skipulagsnefnd. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 12   
 | 
 Indriðastaðir-Stráksmýri, deiliskipulag     –     Mál nr. 1309002 
 | |
| 
 Deiliskipulag frístundabyggðar Stráksmýrar í landi Indriðastaða var auglýst sbr. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga 123/2010 m.s.br. frá 20 maí til 1 júlí 2015. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma. 
 | ||
| 
 Hreppsnefnd samþykkir auglýsta tillögu deiliskipulags sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Skipulagsfulltrúa falið að senda samþykkta tillögu deiliskipulags til yfirferðar og í kjölfarið birta auglýsingu um samþykkt deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda. 
 | ||
| 
 | 
||
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
22:30.
