99 – Hreppsnefnd

Skorradalshreppur

Hreppsnefnd Skorradalshrepps
Fundur nr. 99

miðvikudaginn 14. september 2016 kl. 20:30, hélt hreppsnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:

Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, Árni Hjörleifsson, Sigrún Guttormsdóttir Þormar og Ástríður Guðmundsdóttir.

Fundarritari var Pétur Davíðsson, hreppsnefndarmaður.

Þetta gerðist:

Almenn mál

1

Ársreikningur Skorradalshrepps fyrir árið 2015 – Mál nr. 1606025

Ársreikningur 2015

Farið yfir niðurstöður ársins. Málinu frestað.

2

3. mánaðauppgjör fyrir árið 2016 – Mál nr. 1609001

Lagt fram.

3

6. mánaðauppgjör fyrir árið 2016 – Mál nr. 1609002

Lagt fram.

4

Erindi frá Advania ehf. – Mál nr. 1607010

Lögð fram tilkynning um lok bókhaldskerfsins SFS.

Málið rætt. PD falið að skoða næstu skref og koma með tillögur.

5

Húsafriðunarsjóður 2016 – Mál nr. 1608008

Lögð fram umsókn um styrk um verndarsvæði í byggð.

6

Framdalsfélagið – samningur um samstarf. – Mál nr. 1608009

Lagður fram samningur Framdalsfélagið um samstarf við mótun tillögu um verndarsvæði.

Samningurinn samþykktur.

7

Umsókn í styrkvegasjóð Vegagerðarinnar fyrir árið 2016 – Mál nr. 1603014

Lagt fram svarbréf Styrkvegasjóðs.

Oddvita falið að móta tillögur að nýtingu styrksins.

8

Ályktun frá Búnaðarþingi 2016 – Mál nr. 1608011

Lögð fram ályktun og spurningar er varðar fjallskil.

Málið rætt, JEE falið að svara Bændasamtökunum.

9

Erindi frá Matvælastofnun. – Mál nr. 1609003

Erindið fjallar um brynningu í réttum.

Lagt fram.

10

Erindi frá Velferðarráðuneytinu. – Mál nr. 1608010

Lagt fram erindi Velferðarráðuneytisins. Erindi varðar málefni fatlaðra. Lögð fram umsögn oddvita.

Oddviti kynnti málið, hreppsnefnd samþykkir umsögn oddvita.

11

Gjaldskrá embættis skipulags- og byggingarfulltrúa – Mál nr. 1603005

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að vísa gjaldskrá til afgreiðslu hreppsnefndar. Fyrri umræða á gjaldskrátillögu.

Hreppsnefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar málinu til annarrar umræðu.

Fundargerðir til staðfestingar

12

Skipulags- og byggingarnefnd – 99 – Mál nr. 1608001F

Lögð fram fundargerð frá 2. ágúst s.l.

Fundargerðin samþykkt í öllum 6 liðum.

12.1

1605012 – Indriðastaðir 10, umsókn um byggingarleyfi

12.2

1605005 – Hvammsskógur 43, umsókn um byggingarleyfi

12.3

1607009 – Indriðastaðir Kaldárkot

12.4

1606021 – Landsskipulagsstefna 2015-2026

12.5

1607008 – Hvammsskógur,umsókn um framkvæmdaleyfi göngustígs

12.6

1602007 – Skátaskálalögn, endurnýjun hitaveitu.

13

Skipulags- og byggingarnefnd – 100 – Mál nr. 1609002F

Lögð fram fundargerð frá 12. september s.l.

Fundargerðin samþykkt í öllum 3 liðum.

13.1

1510001 – Indriðastaðir 4, umsókn um stækkun

13.2

1607009 – Indriðastaðir Kaldárkot

13.3

1603005 – Gjaldskrá embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

Skipulagsmál

14

Indriðastaðir Kaldárkot – Mál nr. 1607009

Sótt er um leyfi til að byggja frístundahús 100,4 fm ásamt geymsluskúr 10,3 fm á lóð Kaldárkots. Fyrir er á lóðinni eldra hús. Stefnt er að því að rífa það. Kaldárkot er ekki á samþykktu deiliskipulagi en í samræmi við aðalskipulag. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að grenndarkynna byggingarleyfi sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. fyrir lóðarhafa Indriðastaðahlíðar 106, landeiganda og landeiganda Mófellsstaða.

Hreppsnefnd samþykkir afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar og leggur enn fremur til að grenndarkynnt verði fyrir sumarhúsafélagi Indriðastaða. Hreppsnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

15

Indriðastaðir Kaldárkot – Mál nr. 1607009

Sótt er um leyfi til að byggja frístundahús 100,4 fm ásamt geymsluskúr 10,3 fm á lóð Kaldárkots. Fyrir er á lóðinni eldra hús. Stefnt er að því að rífa það. Kaldárkot er ekki á samþykktu deiliskipulagi en í samræmi við aðalskipulag. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til, á 99. fundi sínum, við hreppsnefnd að grenndarkynna byggingarleyfi sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. fyrir lóðarhafa Indriðastaðahlíðar 106, landeiganda og landeiganda Mófellsstaða.Þegar teikningar bárust þann 28. ágúst sl. kom í ljós að nýja frístundahúsið er á öðrum stað en núverandi hús. Ný staðsetning er innan 50 m frá Kaldá, en sbr. gr. 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð er kveðið á um að utan þéttbýlis skuli ekki reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 m. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til, á 100. fundi sínum, við hreppsnefnd að byggingarleyfisumsókn verði ekki grenndarkynnt fyrr en fengin hefur verið undanþága frá umræddri grein skipulagsreglugerðar hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um fjarlægð frá Kaldá. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Hreppsnefnd samþykkir að farið verði í að óska eftir undanþágu frá gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um fjarlægð frá ám og vötnum. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

16

Landsskipulagsstefna 2015-2026 – Mál nr. 1606021

Erindi barst frá Skipulagsstofnun, dags. 16. júní 2016. Skipulagsstofnun óskar eftir skráningu tengiliða frá hverju sveitarfélagi á samráðsvettvang um framfylgd landsskipulagsstefnu. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins verði tengiliður á samráðsvettvang um framfylgd landsskipulagsstefnu og formaður skipulags- og byggingarnefndar verði varamaður tengiliðar.

Hreppsnefnd samþykkir bókun skipulags- og byggingarnefndar. Skipulagsfulltrúa falið að tilkynna Skipulagsstofnun um tengiliði og varamann sveitarfélagsins á samráðsvettvang um framfylgd landsskipulagsstefnu.

17

Skátaskálalögn, endurnýjun hitaveitu. – Mál nr. 1602007

Samkvæmt beiðni Veitna er óskað eftir því að framkvæmdaleyfi verði framlengt þar til lok maí 2017 þar sem tafir hafa orðið á verkinu og ljóst að ekki verður hægt að ljúka loka frágangi fyrir veturinn með sáningar og fleira. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir á 99. fundi sínum þann 2. ágúst 2016 að framkvæmdaleyfi verði framlengt til 1. júní 2017.

Hreppsnefnd samþykkir bókun skipulags- og byggingarnefndar og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

18

Skipulagsdagur 2016 – Mál nr. 1609004

Skipulagsdagurinn 2016 verður haldinn fimmtudaginn 15. september nk. sem Skipulagsstofnun stendur að í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Hreppsnefnd leggur til að oddviti fari fyrir hönd sveitarfélagsins á Skipulagsadaginn 2016.

19

Indriðastaðir 4, umsókn um stækkun – Mál nr. 1510001

Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. fyrir landeiganda og lóðarhöfum Indriðastaða 3 og 5. Grenndarkynningartíma var frá 2. júní til 2. júlí 2016. Þar sem póstur var endursendur var grenndarkynningartími framlengdur til 21. júlí 2016. Engar athugasemdir bárust á grenndarkynningartíma. Óskað var eftir frekari upplýsingum frá umsækjanda um fjarlægð fyrirhugaðrar byggingar frá Skorradalsvatni. Samkvæmt hans mælingum er gert ráð fyrir að fyrirhuguð bygging muni standa um 40 m frá vatni, en sbr. gr. 5.3.2.14 í skipulagsreglugerð er kveðið á um að utan þéttbýlis skuli ekki reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 m. Skipulags- og byggingarnefnd bendir á að fengin var undanþága frá umræddri grein skipulagsreglugerðar vegna sambærilegs máls á lóð Indriðastaða 3. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að veitt verði byggingarleyfi ef fæst undanþága frá umræddri grein skipulagsreglugerðar frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um fjarlægð frá vatni. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Hreppsnefnd samþykkir að farið verði í að óska eftir undanþágu frá gr. 5.3.2.14 skipulagsreglugerðar hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu um fjarlægð frá vatni. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Hreppsnefnd samþykkir veitingu byggingarleyfis að því gefnu að fjarlægð frá vatni fáist hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl.

23:15.