Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps
101. fundur
þriðjudaginn 11. október 2016 kl. 13:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
Jón E. Einarsson, Pétur Davíðsson, Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir og Sæmundur Víglundsson.
Fundarritari var Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi.
TVS forfallaðist.
SV var viðstaddur fund í gegnum síma.
Þetta gerðist:
| 
 Fundargerðir til staðfestingar 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 38     –     Mál nr. 1606002F 
 | |
| 
 Lagt fram til kynningar. 
 | ||
| 
 1.1  
 | 
 1605005 – Hvammsskógur 43, umsókn um byggingarleyfi 
 | |
| 
 1.2  
 | 
 1605012 – Indriðastaðir 10, umsókn um byggingarleyfi 
 | |
| 
 1.3  
 | 
 1606019 – Refsholt 19, umsókn um byggingarleyfi 
 | |
| 
 | 
||
| 
 2   
 | 
 Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 39     –     Mál nr. 1607001F 
 | |
| 
 Lagt fram til kynningar 
 | ||
| 
 2.1  
 | 
 1605008 – Vatnsendahlíð 87, byggingarmál 
 | |
| 
 2.2  
 | 
 1604006 – Fitjahlíð 51A, niðurrif byggingar 
 | |
| 
 2.3  
 | 
 1605007 – Umsókn um flutning Vatnsendahlíð 187 og 189 
 | |
| 
 2.4  
 | 
 1602004 – Indriðastaðir 1A 
 | |
| 
 2.5  
 | 
 1607009 – Indriðastaðir Kaldárkot 
 | |
| 
 | 
||
| 
 3   
 | 
 Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 40     –     Mál nr. 1610002F 
 | |
| 
 Lagt fram til kynningar. 
 | ||
| 
 3.1  
 | 
 1609005 – Hvammsskógur 11, byggingarmál 
 | |
| 
 3.2  
 | 
 1609006 – Vatnsendahlíð 183, Umsókn um byggingarleyfi 
 | |
| 
 | 
||
| 
 Byggingarleyfismál 
 | ||
| 
 4   
 | 
 Vatnsendahlíð 183, Umsókn um byggingarleyfi     –     Mál nr. 1609006 
 | |
| 
 Á 40. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa er málinu vísar til Skipulags- og byggingarnefndar þar sem ætlað byggingarmagn er umfram heimildir á lóð. Sótt er um að byggja frístundarhús 107,1 m2 að stærð. Heimilað byggingarmagn á lóð er 100 m2 samkvæmt gildandi deiliskipulagi frístundalóða á Vatnsendahlíð, 8. áfanga.  
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd frestar málinu þar til fyrir liggur breyting á deiliskipulagi. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 5   
 | 
 Vatnsendahlíð 183, breyting á deiliskipulagi     –     Mál nr. 1610003 
 | |
| 
 Óskað er eftir breytingu deiliskipulags Vatnsendahlíðar, 8. áfanga er varðar lóð Vatnsendahlíðar 183. Um er að ræða aukið byggingarmagn á lóð úr 100 fm í 107,1 fm. Breytingartillaga deiliskipulags liggur ekki fyrir. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að heimila óverulega breytingu deiliskipulags Vatnsendahlíðar, 8. áfanga skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar aukið byggingarmagn á lóð Vatnsendahlíðar 183, með fyrirvara um að fullnægjandi gögn berist. Tillaga óverulegrar breytingar deiliskipulags verður grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Vatnsendahlíðar 180, 181, 182, 184, 185 og landeiganda. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Framkvæmdarleyfi 
 | ||
| 
 6   
 | 
 Indriðastaðir, endurnýjun hitaveitulagnar, framkvæmdaleyfi     –     Mál nr. 1608001 
 | |
| 
 Sótt er um framkvæmdaleyfi um endurnýjun hitaveitulagnar í landi Indriðastaða. Um er að ræða stofnlagnir og heimtaugar í elsta hluta frístundabyggðar Indriðastaða, Stráksmýrar og tveggja lóða við Skógarás. Deiliskipulag liggur ekki fyrir í elsta hluta frístundabyggðar Indriðastaða. 
 
Framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag.  | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að umrædd framkvæmd sé ekki framkvæmdaleyfisskild þar sem nefndin telur hana vera óverulega sbr. 5. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Skipulags- og byggingarnefnd leggur samt til að aflað verði umsagnar Minjastofnunar þar sem framkvæmd fer um svæði þar sem ekki er í gildi deiliskipulag. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Fyrispurn 
 | ||
| 
 7   
 | 
 Hvammsskógur 45, bygg.mál     –     Mál nr. 1407004 
 | |
| 
 Eigendur lóðanna, Hvammsskógar 45 og 47, í landi Hvamms í Skorradal, óska heimildar til að loka skurði sem er á milli lóðanna og setja rör í skurðinn 200 / 250 mm drenrör og loka yfir með jarðvegi.
 
Að sögn lóðarhafa þá er sjaldan vatn í skurðinum það vatn sem í hann kemur er frá brunni sem yfirfall. Lóðarhafar vita ekki hvort umræddur brunnur er í notkun ennþá og þá af hverjum.  | ||
| 
 Brunnurinn er vatnsból Skógræktar ríkisins í Hvammi og er í notkun. Í ljósi þessa er afar mikilvægt að lóðarhafar loki ekki skurðinum nema í fullu samráði við Skógræktina. Skipulags- og byggingarnefnd gerir að öðru leiti ekki athugasemd við umrædda aðgerð. Skipulagsfulltrúa falið að senda afrit af afgreiðslu nefndarinnar á Skógrækt ríkisins í Hvammi. 
 | ||
| 
 | 
||
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
14:00.
