Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps
80. fundur
Þriðjudaginn 27. maí 2014 kl. 13:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
Jón E. Einarsson, Pétur Davíðsson og K. Hulda Guðmundsdóttir.
Fundarritari var Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi.
Þetta gerðist:
| 
 Almenn mál 
 | ||
| 
 1   
 | 
 Skipulagsfulltrúar sem skráðir eru hjá Skipulagsstofnun í desember 2013     –     Mál nr. 1401001 
 | |
| 
 Erindi frá Skipulagsstofnun, dags. 14. apríl 2014 er varðar skráða starfandi skipulagsfulltrúa. 
 | ||
| 
 Erindi og yfirlit lagt fram. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 2   
 | 
 Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 25     –     Mál nr. 1405001F 
 | |
| 
 Fundargerð lögð fram 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 Skipulagsmál 
 | ||
| 
 3   
 | 
 Fundur á Skipulagsstofnun     –     Mál nr. 1405004 
 | |
| 
 Skipulagsfulltrúi og Pétur Davíðsson fóru á fund Skipulagsstofnunar. 
 | ||
| 
 Skipulagsfulltrúi og Pétur gerðu grein fyrir fundi. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 4   
 | 
 Hvammsskógar 46, bygg.mál     –     Mál nr. 1310001 
 | |
| 
 Óveruleg breyting deiliskipulags var grenndarkynnt frá 25. mars 2014 til 25. apríl 2014. Tvö erindi bárust vegna grenndarkynningarinnar. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að samþykkja óverulega breytingu deiliskipulags. Skipulagsfulltrúa falið að birta niðurstöðu hreppsnefndar í B-deild Stjórnartíðinda. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 5   
 | 
 Könnun um landnotkun í dreifbýli     –     Mál nr. 1405003 
 | |
| 
 Erindi barst frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu er varðar könnun um landnotkun í dreifbýli. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að taka saman gögn er varðar málið. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 6   
 | 
 Lambaás 4-deiliskipulagsbreyting     –     Mál nr. 1309001 
 | |
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd hefur móttekið erindi frá Megin lögmannsstofu fyrir hönd lóðarhafa Lambaás 4 þar sem þess er farið á leit við nefndina að hún endurskoði afstöðu sína er kom fram í bókun 75. fundar nefndarinnar þann 10.9.2013. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að grenndarkynna óverulega breytingu deiliskipulags sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem lóð Lambaás 4 er skipt upp í tvær jafnstórar lóðir. Grenndarkynning óverulegrar breytingar fer fram þegar hreppsnefnd hefur samþykkt bókun skipulags- og byggingarnefndar og fyrir liggur grenndarkynningargögn óverulegrar breytingar deiliskipulags og greiðsla vegna grenndarkynningar hefur borist. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 7   
 | 
 Fitjahlíð 33A, byggingarmál     –     Mál nr. 1210006 
 | |
| 
 2. Haraldur Á. Haraldsson sækir um að byggja við núverandi frístundarhús sem er 75,3 m2, á lóð er einnig geymsla 11,4 m2. Heildar bygggingarmagn á lóð er 86,7 m2. Sótt er um byggingarleyfi fyrir 20,1 m2 viðbyggingu, skv. teikningum frá Haraldi Á Haraldssyni, MTFÍ, dags. í mars 2014.
 
Frístundalóð er 2000 fm. Samkvæmt aðalskipulagi er heimilað nýtingarhlutfall frístundalóða 0,05. Heimilað byggingarmagn á lóð Fitjahlíðar 33A er því 100 fm. Afgreiðsla byggingarfulltrúa; Málinu vísað til skipulags- og bygginganefndar þar sem heildarbyggingamagn fer yfir þau stærðarmörk sem heimild er fyrir.  | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd hafnar umsókn um byggingarleyfi þar sem það samræmist ekki nýtingarhlutfalli lóðar í aðalskipulagi. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 8   
 | 
 Fitjahlíð 68 og 68A, sameining lóða     –     Mál nr. 1405005 
 | |
| 
 Hulda Guðmundsdóttir,kt. 040560-2709, f.h. landeigenda Fitja,lnr. 133958, sækir um að sameina lóðirnar Fitjahlíð 68, lnr.200913 og Fitjahlíð 68A lnr.133963, skv. teikningum Péturs Jónssonar, Landark. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að fresta afgreiðslu málsins. Skipulagsfulltrúa falið að fá leiðbeiningar hjá Skipulagsstofnun varðandi málið. KHG vék af fundi við afgreiðslu málsins. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 9   
 | 
 Fitjahlíð 65 og 65B, umsókn um skitpingu lóðar     –     Mál nr. 1405006 
 | |
| 
 Hulda Guðmundsdóttir,kt. 040560-2709, f.h. landeigenda Fitja,lnr. 133958, óskar eftir að skipta lóðinni Fitjahlíð 65, lnr.134163, nú 10000 m2 í tvær lóðir, Fitjahlíð 65 og Fitjahlíð 64B, þannig að hvor um sig verði 5000 m2, skv. teikningum Péturs Jónssonar, Landark. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að fresta afgreiðslu málsins. Skipulagsfulltrúa falið að fá leiðbeiningar Skipulagsstofnunar varðandi málið. KHG vék af fundi við afgreiðslu málsins. 
 | ||
| 
 | 
||
| 
 10   
 | 
 Fitjahlíð 82, Umsókn um bygg.leyfi fyrir gestahúsi     –     Mál nr. 1304005 
 | |
| 
 Hulda Guðmundsdóttir,kt. 040560-2709, f.h. landeigenda Fitja,lnr. 133958, óskar eftir að stækka lóðina Fitjahlíð 82, lnr.134040, úr 2000 m2 í 3005 m2, skv. teikningum Péturs Jónssonar, Landark. 
 | ||
| 
 Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að fresta afgreiðslu málsins. Skipulagsfulltrúa falið að fá leiðbeiningar Skipulagsstofnunar varðandi málið. KHG vék af fundi við afgreiðslu málsins. 
 | ||
| 
 | 
||
Fleira gerðist ekki. 
Fundi slitið kl. 
15:20.
