Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps
77. fundur
Þriðjudaginn 25. febrúar 2014 kl. 14:00, hélt skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps fund á Hvanneyri. Þessir sátu fundinn:
Pétur Davíðsson, Jón E. Einarsson, K. Hulda Guðmundsdóttir, Sæmundur Víglundsson og Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir.
Fundarritari var Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir, skipulagsfulltrúi.
Þetta gerðist:
Almenn mál
| ||
1
|
Boð um þátttöku í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026 – Mál nr. 1402004
| |
Bréf frá Skipulagsstofnun þar sem boðin er þátttaka í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að skipulagsfulltrúi taki þátt í samráðsvettvangi vegna mótunar landsskipulagsstefnu 2015-2026
| ||
|
||
2
|
Skipulag byggðar og mótun umhverfis. Hvernig getur þú haft áhrif? – Mál nr. 1402005
| |
Bréf frá Skipulagsstofnun varðandi skipulag byggðar og mótun umhverfis. hvernig getur þú haft áhrif?
| ||
Erindi lagt fram
| ||
|
||
3
|
Skipulagsfulltrúar sem skráðir eru hjá Skipulagsstofnun í desember 2013 – Mál nr. 1401001
| |
Bréf frá Skipulagsstofnun varðandi skipulagsfulltrúa sem skráðir eru hjá Skipulagsstofnun í desember 2013
| ||
Erindi lagt fram
| ||
|
||
4
|
Kynningafundur vegna Landskipulagstefnu 2015-2026 – Mál nr. 1402008
| |
Kynning á Lýsingu Landsskipulagsstefnu 2015-2026 verður haldin í Borgarnesi 27. febrúar nk. kl. 14-16 að Bjarnarbraut 8.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að að skipulagsfulltrúi fari á kynningu vegna lýsingar á Landsskipulagsstefnu 2015-2026.
| ||
|
||
Fundargerðir til staðfestingar
| ||
5
|
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa – 24 – Mál nr. 1402005F
| |
Fundargerð lögð fram
| ||
|
||
Byggingarleyfismál
| ||
6
|
Indriðastaðir 4, umsókn um bygg.gestahúss – Mál nr. 1303001
| |
Á 24. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa var umsókn um byggingarleyfi tekið fyrir og vísað til skipulags- og byggingarnefndar. Byggingaráform skv. umsókn kveða á um 35,2 m2 gestahús. Um er að ræða þegar byggt hverfi og deiliskipulag ekki í gildi fyrir svæðið. Byggingaráform samræmast stefnumörkun aðalskipulags.
| ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að grenndarkynna byggingarleyfi sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2014 fyrir lóðarhöfum Indriðastaða 3, 5 og landeiganda.
| ||
|
||
7
|
Fitjahlíð 51. – Mál nr. 1202002
| |
Bréf frá Sigurði T. Magnússyni f.h. Þorsteins Marinóssonar vegna Fitjahlíðar 51 í landi Fitja
| ||
Erindi lagt fram. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að unnin verði tillaga deiliskipulags lóða nr. 47, 49, 51A, 51, 53, 54, 56, 58, 60 og 62. Stefnt skal að því að tillaga deiliskipulags liggi fyrir í lok mars. Skipulagsfulltrúa falið að svara erindi Sigurðar T. Magnússonar.
KHG sat hjá við afgreiðslu málsins. | ||
|
||
8
|
Stóra-Drageyri 5, umsókn um byggingarleyfi – Mál nr. SK080066
| |
Þór Magnússon, kt:181137-2239, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu, 8,5 m2, við núverandi frístundarhús á lóðinni Stóra-Drageyri 5,skv. teikningum, dags: 22.12.2013 frá JeES arkitektar, Jón Stefán Einarsson, kt: 270976-3609.
Afgreiðslu vísað til Skipulags- og byggingarnefndar þar sem ekki er í gildi skipulag fyrir þetta svæði. | ||
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við hreppsnefnd að grenndarkynna byggingarleyfi sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2014 fyrir lóðarhöfum Stóru-Drageyra 3, 4, 6 og landeiganda.
| ||
|
||
Skipulagsmál
| ||
9
|
Fitjahlíð, deiliskipulag Kiðhúsbala – Mál nr. 1402009
| |
Í framhaldi af máli Fitjahlíðar 51 sbr. málsnr. 1202002
| ||
Skipulagsfulltrúa falið að vinna kostnaðaráætlun vegna vinnu deiliskipulags lóða í Fitjahlíð nr. 47, 49, 51A, 51, 53, 54, 56, 58, 60 og 62.
KHG sat hjá við afgreiðslu málsins. | ||
|
Fleira gerðist ekki.
Fundi slitið kl.
16:20.